Afmæliskringla
- Ofnhiti
- 200–225 °C
Hráefni
Deig
- 50 g ferskt ger (eða um 17 g þurrger)
- 1 msk. vatn, volgt
- 2 egg
- 300 g hveiti
- smá salt
- 50 g sykur
- 200 g smjör, kalt
Fylling
- 75 g smjör, mjúkt
- 75 g sykur
- 50 g rúsínur
- 50 g súkkat, smátt saxað
- 50 g makkarónur, muldar (stökkar möndlukökur)
Aðferð
- Leysið gerið upp í volga vatninu. Blandið hveiti, sykri og salti saman í skál og myljið kalt smjörið saman við með fingurgómunum (eða í matvinnsluvél) þar til blandan er eins og gróf mylsna. Þeytið eggin létt og takið smávegis frá til að pensla með. Bætið gerblöndunni og eggjunum út í og hnoðið rétt saman í mjúkt deig. Kælið deigið í um 15 mínútur.
- Hrærið mjúkt smjörið og sykurinn í fyllinguna saman. Fletjið deigið út í langa lengju, um 15 cm × 70 cm. Smyrjið fyllingunni eftir miðri lengjunni og stráið rúsínum, súkkati og muldum makkarónum yfir. Brjótið hliðarnar yfir fyllinguna, leggið lengjuna á plötu með bökunarpappír, samskeytin niður, og mótið hana í kringlu.
- Látið hefast í 45 mínútur.
- Penslið með eggi og stráið sykri og söxuðum hnetum yfir.
- Látið hefast aftur í um 45 mínútur. Hitið ofninn í 200–225°C á meðan.
- Bakið við 200–225°C í um 15 mínútur, þar til kringlan er gullinbrún.
Eins og hún skrifaði það

Fødselsdagskringle
50 gr. ger - 1 msk. volgt vatn
2 egg - 300 gr. hveiti - smá salt
50 gr. sykur - 200 gr. smjör
Fylling:
75 gr. smjör
75 gr. sykur - 50 gr. Rúsínur
50 gr. súkkat - 50 gr. makkarónur
Hefast í 45 min. Pensla m/eggi og
sykri + hnetum stráð yfir. Hefast
aftur í ca. 45 min.
Bakað 200-225°C í ca. 15 min.