Brauð og bakstur

Ástarpungar

Frá
Sigga

Hráefni

  • 1 kg hveiti
  • 300 g sykur
  • 8 tsk. lyftiduft
  • 400 g rúsínur
  • 3 egg
  • 4 dl súrmjólk
  • 5 dl mjólk
  • 85 g appelsínusúkkat
  • 7 tsk. vanilludropar
  • 6–7 tsk. kardimommudropar
  • olía, til djúpsteikingar

Aðferð

  1. Hrærið egg, súrmjólk, mjólk, appelsínusúkkat, vanilludropa og kardimommudropa vel saman.
  2. Blandið hveiti, sykri, lyftidufti og rúsínum saman, bætið vökvanum út í og hnoðið allt saman í þykkt, mjúkt deig.
  3. Hitið olíuna í potti í um 180°C.
  4. Setjið deigið í olíuna með matskeið og steikið kúlurnar þar til þær eru dökkgullnar og gegnsteiktar; snúið þeim við eftir þörfum.
  5. Steikið mest 10 í einu í pottinum.
  6. Látið renna af þeim á eldhúspappír.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Ástarpungar
(Sigga fr. + ?)
1kg. hveiti — 300gr. sykur — 8 tsk. lyftid. — 400gr. Rúsínur — (3egg + 4 dl. súrmjólk + 5dl. mjólk + (85)gr. appels. + 7 tsk. Vanilla + 6-7 tsk. kardm.dr = hrært vel saman)
Allt hnoðað saman 250 +- hiti á olíunni — 10 mest í pottinum.