Baby Ruths
- Frá
- Heiðar Örn
- Ofnhiti
- 185 °C
Hráefni
Kakan
- 4 eggjahvítur
- 220 g sykur
- 28 Ritz-kex
- 140 g salthnetur
- 1½ tsk. lyftiduft
Súkkulaðikrem
- 3 eggjarauður
- 100 g smjör
- 30 g flórsykur
- 130 g Síríus konsum-súkkulaði, brætt (Síríus konsum er íslenskt suðusúkkulaði.)
Aðferð
Kakan
- Hitið ofninn í 185°C og smyrjið form eða klæðið það bökunarpappír.
- Stífþeytið eggjahvíturnar og sykurinn.
- Myljið Ritz-kexið og salthneturnar í matvinnsluvél og blandið lyftiduftinu saman við.
- Blandið þessu varlega saman við eggjahvíturnar.
- Bakið við 185°C í um 25 mínútur.
- Látið kökuna kólna.
Súkkulaðikrem
- Bræðið súkkulaðið og smjörið saman og látið kólna aðeins. Þeytið eggjarauðurnar og flórsykurinn vel saman og blandið súkkulaðinu saman við.
- Hellið kreminu yfir kökuna.
Eins og hún skrifaði það

Baby Ruths
(Heiðar)
4eggjahvítur + 220gr. sykur) Stífþeytt
28 Ritzkex + 140gr. salthnetur) Sett í Múli
1 1/2 tsk. lyftid
Bl. varl. saman.
Bakað 185°c. í ca. 25min.
Súkkul. KRem:
3eggjarauður — 100gr. smjör
30gr. flósykur — 130gr. Sirius konsum, BR…
Hellt yfir kökuna.