Bananabrauð
- Frá
- Hrefna
- Ofnhiti
- 180 °C
Hráefni
- 300 g hveiti
- 210 g sykur
- 2 egg
- 2–3 bananar, vel þroskaðir, stappaðir
- 1 tsk. matarsódi
- ½ tsk. salt
Aðferð
- Hitið ofninn í 180°C og smyrjið brauðform.
- Hrærið eggin og stöppuðu bananana vel saman.
- Bætið svo sykrinum út í.
- Blandið hveiti, matarsóda og salti saman og hrærið varlega út í.
- Ein uppskrift passar í eitt brauðform (brúna formið), um 1 kg deig.
- Bakið við 180°C í 1 klukkustund og 15 mínútur.
- Bakið á næstneðstu grind í ofninum.
Athugasemdir
- Notið K-ið (flata hrærarann) á hrærivélinni, ekki þeytarann.
Eins og hún skrifaði það

Bananabrauð
(Hrefna)
300gr. hveiti - 210gr. sykur
2egg + 2-3 bananar) hrært vel
svo sykurinn.
1tsk. natron - 1/2 tsk. salt
1uppskr: 1 brúna formið. (ca 1kg. deig)
180°c. 1klst og 15 min.
næst neðstu rim. ((eða þykktinni) á hæðina)