Kökur og tertur

Bántíkaka

Ofnhiti
180 °C

Hráefni

Botninn

  • 4 eggjahvítur
  • 200 g sykur
  • 200 g kókosmjöl

Krem

  • 200 g súkkulaði (suðusúkkulaði)
  • 75 g smjör
  • 4 eggjarauður
  • 75 g flórsykur
  • rúmlega 1 tappi vanilludropar

Aðferð

Botninn

  1. Hitið ofninn í 180°C og smyrjið eitt hringlaga form eða klæðið það bökunarpappír.
  2. Þeytið eggjahvíturnar og sykurinn vel saman, þar til marengsinn er stífur.
  3. Blandið kókosmjölinu varlega saman við.
  4. Bakið í einu hringlaga formi við 180°C í um 20 mínútur.
  5. Látið botninn kólna.

Krem

  1. Bræðið smjörið og súkkulaðið saman og þeytið vel.
  2. Þeytið eggjarauðurnar og flórsykurinn vel saman og blandið svo öllu saman, ásamt vanilludropunum.
  3. Smyrjið kreminu yfir botninn.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Bántíkaka.
4eggjahvítur + 200gr. sykur) þeytt vel saman. 200gr. Kókosmjöl.
Bakist í 1Ø formi 180°C ca. 20min.
KRem: 200gr. súkkul. — 75gr. smjör 4eggjarauður — 75gr. flórsykur Rúml. 1tappi vanilludr.
BR. smjör + súkkul.) þeyta vel. Rauður + flórs. þeytt vel sm. bl. öllu sm.