Barbecue-kjúklingur
- Frá
- Kristjana
- Ofnhiti
- 180 °C
Hráefni
- 2 kjúklingar, í bitum
- 1 dl sojasósa
- 2 dl apríkósumarmelaði
- 2 dl barbecue-sósa (Hunt's Original barbecue-sósa.)
- 1 peli rjómi (Peli er gömul mælieining, um ¼ lítri.)
- 100 g púðursykur
- 50 g smjör
Aðferð
- Setjið allt nema kjúklinginn í pott og látið malla í smástund.
- Raðið kjúklingabitunum í eldfast mót og hellið sósunni yfir.
- Bakið í ofni við 180°C í um 1 klst. og 15 mínútur.
Athugasemdir
- Borið fram með hrísgrjónum, salati og brauði.
Eins og hún skrifaði það

Hrásalat, kartöflur og sulta.
Barbeque kjúkl.
(Kristjana
2 kjúkl. í bitum - 1dl. sojasósa
2dl. abrikósumarm.
2 dl. B.B. huntssósa Originale
1peli Rjómi - 100gr. púðursykur
50gr. smjör.
Allt sett í pott, mallað. Hellt
yfir kjúkl. í eldf. móti.
Sett í ofn í ca. 1klst + 15min
180°C. Hrísgrjón + salat + brauð
borðað með