Blóðmör
- Frá
- Erla Jónatansdóttir, sem fékk hana frá Elsu
Hráefni
- 1 l blóð (Kindablóð.)
- 60 g salt
- ½ l mjólk
- 400 g rúgmjöl
- 600 g haframjöl
- 1 kg mör, skorinn í litla teninga
Aðferð
- Undirbúið keppina: vambir sem eru skornar í hæfilega stóra bita og saumaðar saman í poka. Einnig má nota pylsugörn eða slátursekki.
- Sigtið blóðið og hrærið salti og mjólk saman við.
- Hrærið rúgmjöli og haframjöli út í og blandið mörnum saman við síðast. Hræran á að vera eins og þykkur grautur.
- Fyllið keppina um það bil ⅔ og saumið eða bindið fyrir.
- Sjóðið keppina í söltu vatni í um 3 klst. Stingið í þá með prjóni þegar þeir fljóta upp svo þeir springi ekki.
Eins og hún skrifaði það

Blóðmör
Erla Jónatans Elsa
1L. Blóð + 60gr. salt
1/2. L. mjólk
400 gr. Rúgmjöl (400)
600 gr. Hafra mjöl (600)
1kg. mör