Brún lagkaka
- Frá
- Vallý
- Ofnhiti
- 200 °C
Hráefni
Kakan
- 250 g smjör, mjúkt
- 250 g sykur
- 1 dós síróp, lítil dós (ljóst síróp, t.d. Lyle's)
- 3 egg
- 3 dl súrmjólk
- 2 tsk. matarsódi
- 1 tsk. negull
- 1 tsk. anís
- 1½ tsk. kanill
- 2 msk. kakó
- 750 g hveiti
Krem
- 250 g smjör, mjúkt
- 4 tsk. vanilludropar
- 500 g flórsykur
- 3 eggjarauður
Aðferð
Kakan
- Hitið ofninn í 200°C. Klæðið 4 bökunarplötur með bökunarpappír (eða bakið í lotum).
- Hrærið smjör og sykur saman þar til létt og ljóst. Hrærið sírópið og síðan eggin saman við, einu í einu.
- Blandið hveiti, matarsóda, negul, anís, kanil og kakói saman og hrærið út í til skiptis við súrmjólkina.
- Skiptið deiginu jafnt á plöturnar fjórar og smyrjið því út í jafna, þunna ferhyrninga.
- Bakið við 200°C í um 12 mínútur í næstneðstu rim.
- Látið botnana kólna alveg.
Krem
- Þeytið mjúkt smjörið og flórsykurinn saman þar til létt og ljóst. Þeytið eggjarauðurnar og vanilludropana saman við.
- Smyrjið kreminu á milli botnanna og leggið þá hvern ofan á annan. Pakkið kökunni inn og geymið hana í kæli yfir nótt áður en hún er skorin.
Eins og hún skrifaði það

Brún lagkaka
(Vallý)
250gr. smjör — 250gr. sykur
1lítil dós sýróp — 3 egg
3 dl. súrmjólk — 2tsk. natron
+1tsk. negull — +1tsk. anís
1 1/2 tsk. kanill — 2msk. kakó
750gr. hveiti.
Sett á 4plötur. 200°c, ca. 12min.
á næst neðstu Rim.
KRem!
250gr. smjör — 4tsk. VanilludR
500gr. flórsykur — 3eggjarauður