Brúnar baunir
- Frá
- Cees
Hráefni
- brúnar baunir, þurrkaðar (Hollenskar brúnar baunir (bruine bonen).)
- beikon, steikt
- laukur
- brúnað smjör
- síróp
- súrar gúrkur
- eplamauk
- kartöflur, soðnar
- egg, harðsoðin
- pipar
- salt
Aðferð
- Leggið baunirnar í bleyti í kalt vatn í um 12 klst.
- Hellið vatninu af, setjið nýtt vatn á og sjóðið baunirnar í um 1 klst., þar til þær eru mjúkar.
- Á meðan: sjóðið kartöflurnar og harðsjóðið eggin, steikið beikonið og laukinn og brúnið smjör á pönnu.
- Berið baunirnar fram með steiktu beikoni og lauk, brúnuðu smjöri, sírópi, súrum gúrkum, eplamauki, kartöflum og harðsoðnum eggjum. Kryddið með pipar og salti.
Eins og hún skrifaði það

Brúnar baunir
(Cees)
Lagðar í bleyti í ca. 12klst.
soðnar í ca. 1klst.
steikt bacon + laukur +
br. smjör + sýróp + sýrðar agúrk
+ eplamús + kartöfl. + harðs. egg
+ pipa og salt