Kökur og tertur

Daimterta

Frá
Hjödda
Ofnhiti
150 °C

Hráefni

Botninn

  • 3 eggjahvítur
  • 2 dl sykur
  • 1 dl hnetur, saxaðar

Ofan á

  • ½ l rjómi, þeyttur
  • 3 eggjarauður
  • 100 g sykur
  • 4–5 matarlímsblöð
  • 1 dl kaffi, heitt
  • 5 lítil Daim-súkkulaði, brytjuð (Daim er sænskt súkkulaðihúðað möndlukaramellustykki.)

Aðferð

Botninn

  1. Hitið ofninn í 150°C. Teiknið hring (um 24 cm) á bökunarpappír á plötu.
  2. Stífþeytið eggjahvíturnar og sykurinn.
  3. Blandið söxuðu hnetunum varlega saman við.
  4. Smyrjið marengsinum í einn botn (eða tvo litla) og bakið við 150°C í um 45 mínútur. Látið kólna.

Ofan á

  1. Þeytið eggjarauðurnar og sykurinn vel saman.
  2. Blandið þeytta rjómanum varlega saman við.
  3. Leggið matarlímsblöðin í bleyti í kalt vatn í nokkrar mínútur, kreistið vatnið úr þeim og leysið þau upp í 1 dl af heitu kaffi. Látið kólna þar til það er volgt.
  4. Hrærið kaffinu saman við rjómablönduna.
  5. Brytjið Daim-súkkulaðið og blandið því saman við.
  6. Látið blönduna þykkna aðeins (t.d. í kæli).

Samsetning

  1. Setjið botninn á tertudisk.
  2. Klippið út plastrenning (t.d. úr bökunarplasti) og setjið hann utan um botninn sem kraga.
  3. Hellið Daim-blöndunni yfir botninn.
  4. Setjið kökuna í frysti.
  5. Takið kökuna úr frystinum um 2 klukkustundum áður en hún er borin fram.

Athugasemdir

  • Borin fram með rjóma.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Dajmterta
(Hjödda)
3 eggjahv. - 2 dl. sykur > Stífþeytt 1 dl. sax. hnetur bl. varlega saman 1 botn, 150°C, ca. 45 min (2 litlir)
ofaná: 1/2 l. þeyttur Rjómi 3 eggjar. + 100gr. sykur þeytt vel sam. þeytt Rjóma bl. varl. saman. 4-5 matarlímsblöð -> 1 dl. Kaffi kælt og öllu bl. saman. 5 lítil Dajm brytuð útí. Láta þykkna.
Botn settur á disk, klippa út plast sem er sett innan á utan hliðar um botn. Dajmbl. hellt yfir. Sett í frysti. Tekin út ca. 2 klst. fyrir notkun. Borin fram með Rjóma