Djöflaterta
- Ofnhiti
- 175 °C
- Form
- 22 cm
Hráefni
Kakan
- 130 g olía
- 3 egg
- 230 g súrmjólk
- 360 g sykur
- 1¾ dl kakó
- 4¾ dl hveiti
- 2 tsk. lyftiduft
- 1½ tsk. matarsódi
- 1 tsk. salt
- 1¼ dl kaffi, mjög sterkt, heitt
Krem
- 400 g smjör, mjúkt
- 200 g rjómaostur
- 600 g flórsykur
- 100 g kakó
- 2 tsk. vanilludropar
- 1 dl kaffi, mjög sterkt, kælt
Aðferð
Kakan
- Hitið ofninn í 175°C. Smyrjið 22 cm form og klæðið botninn með bökunarpappír.
- Pískið olíu, egg, súrmjólk og sykur saman.
- Sigtið kakó, hveiti, lyftiduft, matarsóda og salt út í og hrærið saman. Hrærið að lokum heitu kaffinu út í; deigið verður þunnt.
- Hellið deiginu í formið og bakið við 175°C í um 40 mínútur. Látið kólna alveg.
Krem
- Hrærið smjör og rjómaost vel saman.
- Bætið síðan restinni út í (flórsykri, kakói, vanilludropum og kaffi) og þeytið þar til kremið er slétt.
- Skerið kökuna í tvennt þversum ef vill, setjið krem á milli og smyrjið því yfir og utan á kökuna.
Eins og hún skrifaði það

Djöflaterta.
130 gr. olía
3 stk egg
230 gr. súrmjólk
360 gr sykur
1 3/4 dl. kakó
4 3/4 dl. hveiti
2 tsk. lyftid.
1 1/2 tsk. matarsódi
1 tsk. salt
1 1/4 dl. mjög sterkt kaffi
175°C í ca: 40 min
í 22 cm. formi
Krem:
400 gr smjör
200 gr Rjómaostur
600 gr flórsykur
100 gr. Kakó
2 tsk. Vanilludr.
1 dl. mjög sterkt kaffi
smjör + R. ostur
hrært vel sam.
síðan
Restin