Kökur og tertur

Ensk jólakaka

Ofnhiti
180 °C

Hráefni

  • 375 g smjör, mjúkt
  • 375 g sykur
  • 375 g hveiti
  • 7 egg, stór
  • 1 pakki sykraður appelsínubörkur
  • 100 g rúsínur
  • 150 g kúrenur
  • 100 g súkkat
  • ca. 15 kokteilber
  • 1 bolli döðlur, saxaðar
  • 150 g súkkulaði, saxað
  • 3 dl möndlur, saxaðar (Höfundur setti spurningarmerki á spássíuna við möndlurnar.)
  • 1 tsk. lyftiduft
  • 3 dl sérrí

Aðferð

  1. Leggið alla ávextina (appelsínubörk, rúsínur, kúrenur, súkkat, kokteilber og döðlur) í bleyti í sérríinu yfir nótt, minnst.
  2. Hitið ofninn í 180°C. Smyrjið 2 aflöng form og klæðið þau bökunarpappír.
  3. Hrærið smjör og sykur saman þar til létt og ljóst. Bætið eggjunum út í, einu í einu. Blandið hveiti og lyftidufti saman við og síðan ávöxtunum, súkkulaðinu og möndlunum.
  4. Skiptið deiginu í formin tvö.
  5. Bakið við 180°C í 110 mínútur, eða lengur ef þarf (höfundur setti spurningarmerki við tímann).

Athugasemdir

  • Ekki of mikinn vökva með ávöxtunum.
  • Rúmlega ein og hálf uppskrift fer í brúnu formin, auk eins litla formsins án möndla (hneta).

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Ensk jólakaka.
375gr. smjör - 375gr. sykur - 375gr. hveiti 7 stór egg - 1 pk. appelsínubörkur 100gr. Rúsínur - 150gr. kúrenur 100gr. súkkat - ca. 15 koktailber 1 b. Döðlur - 150gr. súkkul. ? 3 dl. möndlur - 1 tsk. lyftiduft 3 dl. sherry. Rúml. 1 1/2 í brúnu formin Rúm + 1 litla formið án möndl(hnet)
Sett í 2 aflöng mót. Allir ávextir lagðir í sherrybl. yfir nótt minnst. 180°c. 110 min + ? Ekki vökva of mikið af ávexti