Kökur og tertur

Fín konfektkaka

Frá
Dagný
Ofnhiti
180 °C

Hráefni

Kakan

  • 100 g smjör, mjúkt
  • 150 g sykur
  • 4 egg
  • 50 g möndlur, saxaðar (50 g möndlur og 50 g heslihnetur)
  • 50 g heslihnetur, saxaðar
  • 120 g núggat (mjúkt súkkulaði-heslihnetunúggat)
  • ½ dl rjómi
  • 75 g döðlur, saxaðar
  • 100 g hveiti
  • ¼ tsk. lyftiduft

Ofan á

  • 100 g súkkulaði
  • smá rjómi
  • hnetur, saxaðar

Aðferð

Kakan

  1. Hrærið smjör og sykur saman þar til létt og ljóst og bætið svo eggjunum út í, einu í einu.
  2. Bræðið núggatið í rjómanum við vægan hita og blandið saman við deigið.
  3. Bætið síðan þurrefnunum út í: hveiti, lyftidufti, söxuðum hnetum og döðlum.
  4. Setjið deigið í smurt, kringlótt form.
  5. Bakið við 180°C í um 35–45 mínútur á neðstu rim.

Ofan á

  1. Bræðið 100 g súkkulaði með smá rjóma.
  2. Setjið yfir kökuna og stráið söxuðum hnetum yfir.

Athugasemdir

  • Borið fram með þeyttum rjóma.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Fín konfektkaka
(Dagný)
100 gr. smjör - 150 gr. sykur 4 egg - 50/50 gr. möndlur/heslihnetur 120 gr. nougat - 1/2 dl. Rjómi 75 gr. döðlur - 100 gr. hveiti 1/4 tsk. lyftiduft.
Smjör + sykur -> egg. Rjómi + nougat br. saman. síðan þurrefnið. Sett í Ø form. 180°C í ca. 35-45 mín. neðsta rim. Bræða 100 gr. súkkul. + smá Rjóma Sett yfir kökuna + sax. hnetur. borið fram m/þeyttum Rjóma