Fiskibollur
Hráefni
- 2 kg fiskur, roð- og beinlaus (T.d. ýsa eða þorskur.)
- 3 laukar, stórir
- 6 egg
- ½ bolli mjólk (eða rjómi)
- 400 g hveiti
- 50 g kartöflumjöl
- 3 tsk. lyftiduft
- 4 tsk. pipar
- 7 tsk. salt
Aðferð
- Hakkið fiskinn og laukinn saman, helst tvisvar, í hakkavél eða matvinnsluvél.
- Hrærið saltinu saman við farsið fyrst, svo eggjunum, mjólkinni, hveitinu, kartöflumjölinu, lyftiduftinu og piparnum. Hrærið vel.
- Mótið bollur með blautri matskeið og steikið í smjöri og olíu á pönnu við meðalhita í um 4–5 mínútur á hvorri hlið, þar til þær eru gullinbrúnar og steiktar í gegn.
Eins og hún skrifaði það

Fiskibollur
2 kg. fiskur
3 stórir laukar
(eða 7) egg -
1/2 b. mjólk (Rjómi)
…. Hveiti → 4…00 gr
2 msk 50gr.. Kartöflumjöl
3 tsk. lyftiduft
54 tsk. pipar
7 8 tsk. salt