Fljótlegar smákökur
- Ofnhiti
- 220 °C
Hráefni
- 1 bolli sykur
- 180 g smjör, mjúkt
- 2 egg
- 1 bolli púðursykur
- 1 bolli kókosmjöl
- 3 bollar hveiti
- 1 tsk. matarsódi
- ½ tsk. salt
- 200 g súkkulaði, ofan á (Oft suðusúkkulaði í bitum.)
Aðferð
- Hitið ofninn í 220°C og leggið bökunarpappír á ofnplötur.
- Hrærið smjör og sykur (báðar tegundir) vel saman, bætið svo eggjunum út í og loks öllum þurrefnunum.
- Búið til kúlur, rúmlega 1 teskeið hver.
- Þrýstið fjórðungi úr súkkulaðibita ofan á hverja kúlu.
- Raðið 5 x 6 kúlum á hverja plötu og bakið á neðstu rim.
- Bakið við 220°C í um 10 mínútur, ekki lengur.
Eins og hún skrifaði það

"Fljótlegar" smákökur
1 b. sykur - 180 gr. smjör - 2 egg
1 b. púðurs. - 1 b. kókosmjöl
3 b. hveiti - 1 tsk. natron - 1/2 tsk. salt
200gr. súkkul. ofan á
Smjör + sykur hrært vel síðan
eggin svo allt þurrefni. Búnar
til kúlur (Rúml. 1 tsk.) 1/4 af
súkkul. bita þrýst ofaná.
5x6 á plötuna, neðsta Rim.
220°c í ca. 10 min (ekki lengur)