Aðalréttir

Frábær súpa í vetrarkulda

Magn
Fyrir 4

Hráefni

  • 2 kg kræklingur, í skel
  • 1 tsk. saffran
  • 1 búnt vorlaukur
  • 2 hvítlauksgeirar
  • 2 msk. smjör
  • 1 lárviðarlauf
  • 2 greinar timían
  • ½ tsk. chilliduft
  • 4 dl kjúklinga- eða grænmetissoð
  • 1 dós niðursoðnir tómatar
  • 3 dl rjómi
  • 1 sítróna (Safinn notaður.)
  • salt og pipar, eftir smekk

Aðferð

  1. Hreinsið kræklinginn undir köldu, rennandi vatni og togið burt skeggið. Hendið skeljum sem eru brotnar eða lokast ekki þegar bankað er í þær, og síðar þeim sem opnast ekki við suðuna.
  2. Leggið saffranið í bleyti í nokkrar matskeiðar af sjóðandi vatni.
  3. Saxið vorlauk og hvítlauk fínt og takið smá vorlauk frá til að skreyta með.
  4. Mýkið lauk og hvítlauk í smjöri í stórum potti og kryddið með lárviðarlaufi, timíani og chilli.
  5. Bætið kræklingnum, saffranvatninu og soðinu í pottinn, setjið lok á og sjóðið í 5–6 mínútur, þar til skeljarnar hafa opnast.
  6. Hellið tómötum og rjóma út í, látið suðuna koma upp og smakkið til með salti, pipar og safa úr sítrónunni.
  7. Ausið súpunni í skálar og skreytið með vorlauknum sem var tekinn frá og timíani.

Athugasemdir

  • Gott með góðu brauði og smjöri.
  • Ljúffeng súpa er einmitt það sem þarf þegar kólnar í veðri.