Kökur og tertur

Frönsk peru- og möndlubaka

Frá
Heiðar Örn
Magn
Fyrir 8
Ofnhiti
170 °C
Form
20 cm

Hráefni

Kakan

  • 150 g smjör, mjúkt, ósaltað
  • 125 g sykur (fínn sykur er betri)
  • 2 egg
  • 75 g heilhveiti
  • 75 g möndlur, saxaðar
  • smá kanill

Perurnar

  • 3 perur, hvorki of harðar né of mjúkar
  • 25 g smjör, ósaltað
  • 1 msk. sykur

Aðferð

  1. Hitið ofninn í 170°C.
  2. Smyrjið 20 cm form.
  3. Afhýðið perurnar, kjarnhreinsið þær og skerið í fjórðunga.
  4. Hitið smjörið og sykurinn fyrir perurnar á pönnu við lágan hita og steikið perurnar svo létt þar til þær eru aðeins brúnaðar.
  5. Hrærið mjúka smjörið og sykurinn saman þar til blandan er létt og ljós.
  6. Bætið eggjunum út í, einu í einu, og hrærið vel á milli.
  7. Blandið þurrefnunum (heilhveiti, möndlum og kanil) saman og bætið svo út í deigið.
  8. Setjið deigið í formið og raðið perunum ofan á.
  9. Hellið því sem eftir er á pönnunni yfir kökuna.
  10. Bakið í 40–50 mínútur.

Athugasemdir

  • Fínn sykur er betri.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Peru og möndlu kaka
Fyrir 8 manns.
Kakan: • 150g mjúkt smjör (ósaltað) • 125g sykur (fínn er betri) • 2 egg • 75g heilhveiti • 75g saxaðar möndlur • Smá kanill.
Perurnar: • 3 perur (ekki of harðar/mjúkar) • 25g smjör (ósaltað) • 1 msk. sykur
1. Ofn í 170°C 2. Smyrja 20cm form 3. Bræða 25g Smjör 3. Skræla og kjarna perurnar og skera í 1/4. 4. Hita smjör + sykur fyrir perurnar á lágum hita og steikja perurnar svo létt þangað til aðeins brúnar. 4. Hræra egg + sykur. 5. B… eggjum einu og einu og hræra. 6. Hræra saman þurrefni og bæta svo út í. 7. Setja í form og raða perunum ofan á. 8. Hella rest úr pönnunni ofan á kökuna. 9…. Baka í 40-50 min.