Brauð og bakstur

Grautarlummur

Hráefni

  • 600 g grautur (afgangs grjónagrautur)
  • 65 g sykur
  • 2 egg
  • 250–300 g hveiti
  • 3 dl mjólk
  • ca. 1 tsk. sítrónudropar (Á blaðinu: 3–4 tappar (í stað 12 sítrónudropa sem eru strikaðir út).)

Aðferð

  1. Hrærið grautinn, sykurinn og eggin vel saman.
  2. Bætið hveiti og mjólk út í til skiptis og hrærið í þykkt deig; notið 250–300 g hveiti eftir þykkt grautsins. Bætið sítrónudropunum út í.
  3. Hitið pönnu á hita 8 á hellunni og smyrjið hana létt.
  4. Setjið deigið á pönnuna með matskeið og steikið lummurnar á báðum hliðum þar til þær eru ljósbrúnar.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Grautarlummur.
Hiti 8
600gr. grautur — 65gr. sykur 2 egg - 250/300gr. Hveiti 3dl. mjólk. — 12 sítrónudr. → 3-4 tappar