Gyðingakökur
- Ofnhiti
- 200 °C
Hráefni
- 500 g hveiti
- 250 g smjör
- 250 g sykur
- 1 tsk. hjartarsalt
- 2 egg
Aðferð
- Blandið hveiti, sykri og hjartarsalti saman, myljið smjörið út í og hnoðið með eggjunum í slétt deig. Kælið deigið í um klukkustund.
- Hitið ofninn í 200°C. Fletjið deigið þunnt út og stingið út kringlóttar kökur. Raðið á ofnplötur með bökunarpappír.
- Bakið við 200°C í 7–10 mínútur, þar til kökurnar eru ljósgylltar.
Eins og hún skrifaði það

Gyðingakökur.
500gr. hveiti - 250gr. smjör
250gr. sykur - 1 tsk. hjartasalt
2 egg
200°c í 7-10 min.