Hjónabandssæla
- Ofnhiti
- 190 °C
- Form
- 22 cm
Hráefni
- 360 g smjör, mjúkt
- 300 g sykur
- 420 g hveiti
- 225 g haframjöl
- 1½ tsk. matarsódi
- 1 egg
- ca. 240 g sulta („++“: gjarnan aðeins meira; rabarbarasulta er hefðbundin.)
Aðferð
- Hitið ofninn í 190°C og smyrjið formin.
- Blandið hveiti, haframjöli, sykri og matarsóda saman. Myljið eða hnoðið smjörið og eggið saman við í mylsnukennt deig.
- Þrýstið deigi í botninn á forminu: um 350 g í 20 cm form eða um 550 g í 24 cm form. Best er að nota tvö 22 cm form.
- Smyrjið sultunni (um 240 g) yfir botninn og dreifið svo um 240 g af deigi í litlum klöttum ofan á.
- Bakið við 190°C í um 55 mínútur á næstneðstu grind.
- Takið kökuna úr forminu eftir 10 mínútur.
Athugasemdir
- Notið K-ið (flata hrærarann) á hrærivélinni, ekki þeytarann.
Eins og hún skrifaði það

Hjónabandssæla.
Taka úr formi eftir 10 min.
360gr. smjör — 300gr. sykur
420gr. Hveiti - 225gr. Haframjöl
1 1/2 tsk. natron - 1 egg ca. 240gr. sulta ++
Sulta + deigklattar efst.
190°C. ca. 55min. í næst neðstu
Rim. 240 deig ofaná
1x20cm. form (350gr) … deig í botn
1x24cm. -"- (550gr) … Best 2x22cm. / sinnum
einf. (eða þykktin) á hæðina.