Meðlæti, sósur og sultur

Hollt og gott túnfisksalat Berglindar Hreiðars

Frá
Berglind Hreiðars
Heimild
Berglind Hreiðars (dagblaðsúrklippa; nafn blaðsins kemur ekki fram)

Hráefni

  • 1 dós túnfiskur í vatni (ORA)
  • 4 egg, harðsoðin
  • 1 avókadó, stórt
  • 3 msk. blaðlaukur, saxaður
  • 200 g kotasæla
  • 180 g sýrður rjómi
  • Aromat (kryddsalt frá Knorr)
  • pipar

Aðferð

  1. Látið vatnið renna vel af túnfisknum og setjið hann í skál.
  2. Saxið eggin og avókadóið í bita og bætið í skálina ásamt blaðlauknum.
  3. Hrærið kotasæluna og sýrða rjómann saman í annarri skál og kryddið með Aromat og pipar.
  4. Veltið öllu varlega saman með sleif svo avókadóið maukist ekki, smakkið og bætið við kryddi ef þarf.

Athugasemdir

  • Gott með Finn Crisp-hrökkbrauði eða -snakki.