Kökur og tertur

Hunangskaka

Hráefni

Kakan

  • 150 g hunang
  • 150 g smjör
  • 200 g púðursykur
  • 3 egg, stór
  • 250 g hveiti
  • 2 tsk. lyftiduft
  • 1 msk. brúnkökukrydd (blanda af kanil, negul, engifer o.fl.)

Krem

  • 150 g smjör, mjúkt
  • 150 g flórsykur
  • 2 eggjarauður

Aðferð

Kakan

  1. Hitið ofninn í 175°C og smyrjið 24 cm kringlótt form (eða klæðið ferkantað form um 20 cm x 30 cm með bökunarpappír).
  2. Bræðið hunang og smjör saman í potti við vægan hita og látið kólna aðeins.
  3. Þeytið púðursykur og egg saman þar til ljóst og létt.
  4. Hrærið hunangsblöndunni saman við eggjablönduna. Blandið hveiti, lyftidufti og brúnkökukryddi saman og hrærið varlega út í.
  5. Hellið deiginu í formið og bakið í um 35–45 mínútur, þar til prjónn sem stungið er í miðjuna kemur hreinn upp. Látið kólna alveg.

Krem

  1. Þeytið mjúkt smjör og flórsykur saman þar til létt og ljóst, bætið eggjarauðunum út í og þeytið vel. Smyrjið kreminu á kalda kökuna.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Hunangskaka
150 gr. hunang - 150 gr. smjör 200 gr. púðursykur - 3 stór egg 250 gr. hveiti - 2 tsk. lyftiduft 1 msk. brúnkökukrydd
Krem: 150 gr. smjör - 150 gr. flórsykur 2 eggjarauður