Jarðarberjaterta
- Frá
- Dagný
- Ofnhiti
- 175 °C
Hráefni
Botnar
- 4 egg
- 100 g sykur
- 2 msk. hveiti
- 1 tsk. lyftiduft
- 100 g súkkulaði, saxað
- 100 g hnetur, saxaðar
Fylling og skreyting
- jarðarberjasafi
- rjómi, þeyttur
- jarðarber, marin
- marsípan, flatt út
- ber
Aðferð
Botnar
- Hitið ofninn í 175°C. Smyrjið tvö kringlótt form, um 24 cm, og leggið bökunarpappír í botninn.
- Þeytið egg og sykur þar til blandan er mjög þykk og ljós.
- Blandið hveiti og lyftidufti saman við saxað súkkulaðið og hneturnar og blandið varlega saman við eggjablönduna. Skiptið í formin.
- Bakið við 175°C í um 20–25 mínútur á neðstu rim. Látið botnana kólna.
Fylling og skreyting
- Bleytið botnana með jarðarberjasafa.
- Setjið þeyttan rjóma og marin jarðarber á milli botnanna.
- Leggið útflatt marsípan ofan á.
- Sprautið rjóma upp með hliðunum og toppum ofan á, og skreytið með berjum.
Eins og hún skrifaði það

Jarðaberjaterta
(Dagný)
4 egg - 100 gr. sykur - 2 msk. hveiti
1 tsk. lyftid. - 100 gr. súkkul.
100 gr. hnetur.
175°C í ca. 20-25 min. Neðsta rim
Bleyta botnana með jarðab. safa
Rjómi + marin jarðab. sett á
milli. Marsipan ofan á. Rjóma
sprautað upp m/hliðum + Toppa
ofan á + ber