Kökur og tertur

Kaffiterta

Ofnhiti
180 °C
Form
8 tommur

Hráefni

Kakan

  • 225 g smjör, mjúkt
  • 225 g fínn sykur eða ljós muscovado-sykur (Strikin tvö eru endurtekningarmerki fyrir 225 g.)
  • 4 egg, stór
  • 30 ml sterkt espressókaffi, heitt
  • ½ tsk. espressóduft (skyndikaffi)
  • 225 g hveiti
  • 2 tsk. lyftiduft
  • ca. 1 tsk. matarsódi (tæplega 1 tsk.)
  • 80 g valhnetur, saxaðar

Smjörkrem

  • 145 g smjör, mjúkt
  • 500 g flórsykur
  • 75 ml espressókaffi, kælt
  • 12 valhnetuhelmingar, til að skreyta kökuna (12 eða fleiri)

Aðferð

  1. Hitið ofninn í 180°C. Smyrjið tvö 20 cm kökuform.
  2. Hrærið smjör og sykur saman þar til létt og ljóst. Blandið lyftidufti og matarsóda saman við hveitið. Bætið svo eggjunum og hveitinu út í til skiptis, egg, hveiti, egg, hveiti, egg og loks restinni af hveitinu.
  3. Setjið söxuðu valhneturnar og espressóduftið út í heitt espressókaffið og blandið því svo öllu saman við deigið.
  4. Skiptið deiginu í formin tvö og bakið í 30 mínútur.
  5. Látið botnana standa í formunum í 10 mínútur og takið þá úr formunum.
  6. Látið botnana kólna alveg á grind áður en kremið er sett á.

Kremið

  1. Blandið öllu saman (mjúku smjöri, flórsykri og kældu espressókaffi) og þeytið vel.
  2. Setjið vel af kremi á milli botnanna og ofan á kökuna.
  3. Skreytið vel með söxuðum valhnetum.

Aðrar stærðir

1½ uppskrift

Kakan

  • 340 g smjör, mjúkt
  • 340 g fínn sykur eða ljós muscovado-sykur
  • 6 egg, stór
  • 45 ml sterkt espressókaffi, heitt
  • 1 tsk. espressóduft (skyndikaffi)
  • 340 g hveiti
  • 3 tsk. lyftiduft
  • 120 g valhnetur, saxaðar

Smjörkrem

  • 225 g smjör, mjúkt
  • 750 g flórsykur
  • 115 ml espressókaffi, kælt
  • 20 valhnetuhelmingar, til að skreyta kökuna

Eins og hún skrifaði það

Síða 1 af 2

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Kaffiterta.
225 gr. butter 340gr - - (caster sugar) * (light muscovado sugar) 340gr 4 stór eggs (6 eggs). 30 ml. strong espresso (45 ml.) + 1/2 tsp. espresso powder (+ 1 tsp.) 225 gr. flour + 2 tsp. baking powder (+ tæpl. 1 tsk. natron) 340 gr. flour + 3 tsp lyftid 80 gr. Walnuts 120 gr

Síða 2 af 2

Síðan hennar í uppskriftabókinni
ButterCream. ← 145 gr. butter 225 gr 500 gr. flórsykur 750 gr 75 ml. espresso coffe 115 ml 12+ Walnuts halves for the top of the cake 20+
8" form, ofnhiti 180°C. Butter + sugar = svo egg → svo hveiti + egg + hveiti + egg og Rest af hveiti Hnetur og espressopowder í heitt espressokaffið svo öllu blandað saman, sett í 2 mót, bakist í 30 min. Rest í 10 min. Remove.
KREMIÐ: "Öllu bl. sam. þeyta vel. Setja vel á milli botnanna og ofan á skreyta vel m/söx. valhnetunum