Kartöflusalat
- Magn
- Fyrir 6–8
Hráefni
- 10 kartöflur, soðnar, kældar og skornar í bita
- 3 egg, harðsoðin og söxuð
- 2 epli, skorin í litla bita
- ½ laukur, fínt saxaður
- ½ paprika, smátt skorin
- ¼ bolli relish (sjá Relish-uppskriftina í bókinni)
- 1 bolli majónes
- 1 bolli sýrður rjómi
- ¼ tsk. paprikuduft
- ½ tsk. hvítlauksduft
Aðferð
- Sjóðið kartöflurnar og eggin, kælið og afhýðið. Skerið kartöflurnar í bita og saxið eggin.
- Hrærið saman majónes, sýrðan rjóma, relish, paprikuduft og hvítlauksduft.
- Blandið kartöflum, eggjum, eplum, lauk og papriku varlega saman við sósuna. Smakkið til með salti og pipar og kælið í minnst klukkustund áður en salatið er borið fram.
Eins og hún skrifaði það

Kartöflusalat
(6-8m)
10 kartöflur - 3egg - 2epli
1/2 laukur - 1/2 papr.
1/4 b. Relish - 1b. majó
1 b. sýrður Rjómi -
1/4 tsk. paprduft - 1/2 tsk. hvítl