Aðalréttir

Kjötbollur í kókoskarrýsósu

Heimild
Fréttablaðið ([email protected]); heimild: grgs.is
Magn
Fyrir 4–6

Hráefni

Kjötbollurnar

  • 3 egg
  • 130 g haframjöl
  • 60 ml mjólk
  • 900 g nautahakk
  • 1 msk. engifer, rifið (Á úrklippunni stendur líka 'minched ginger' (sic), þ.e. fínsaxað engifer.)
  • 1 msk. rautt karrýmauk
  • 2 msk. fiskisósa
  • 1 tsk. sykur
  • 20 g kóríander, saxaður
  • 1½ tsk. salt
  • 2 hvítlauksgeirar, pressaður
  • 3 vorlaukar, smátt saxaðir
  • 2 msk. olía, til steikingar, meira eftir þörfum

Kókoskarrýsósa

  • 2 dósir kókosmjólk
  • 3 msk. rautt karrýmauk
  • ½–1 límóna (lime), aðeins safinn
  • salt og pipar, eftir smekk

Aðferð

  1. Hrærið egg, haframjöl og mjólk saman í skál og leyfið höfrunum að drekka í sig vökvann í um 5 mínútur.
  2. Setjið hakkið út í ásamt engifer, 1 msk. af karrýmaukinu, fiskisósu, sykri, kóríander, salti, hvítlauk og vorlauk og vinnið allt vel saman.
  3. Mótið bollur úr deiginu. Brúnið þær í olíu á stórri pönnu, 1–2 mínútur á hvorri hlið, í nokkrum skömmtum ef þarf og bætið við olíu eftir þörfum. Takið bollurnar af pönnunni.
  4. Setjið kókosmjólkina og 3 msk. af karrýmauki á pönnuna og losið steikarskófirnar af botninum út í sósuna.
  5. Setjið bollurnar aftur í sósuna og látið malla í um 8 mínútur, þar til þær eru steiktar í gegn.
  6. Kryddið sósuna með limesafa, salti og pipar.

Athugasemdir

  • Dásamlegar kjötbollur undir asískum áhrifum.
  • Berið fram með hrísgrjónum.