Brauð og bakstur

Kleinur

Frá
Valla, systir fjölskylduvinar

Hráefni

  • 1 kg hveiti
  • 150 g sykur
  • 2 egg
  • 100 g smjör, brætt
  • 4 dl súrmjólk
  • 2 dl mjólk
  • 3 tsk. lyftiduft
  • 1 tsk. salt
  • 1½ tsk. hjartarsalt
  • 2 tsk. matarsódi
  • ½ flaska kardimommudropar (glas = lítið glas af dropum)
  • 1 flaska vanilludropar
  • steikingarfeiti (plötur), til djúpsteikingar (3 plötur fyrir tvöfalda uppskrift (2 kg hveiti))

Aðferð

  1. Hrærið sykur og egg saman.
  2. Bætið síðan mjólkinni (súrmjólk og mjólk), dropunum og loks bræddu smjörinu út í.
  3. Blandið hveiti, lyftidufti, salti, hjartarsalti og matarsóda saman, bætið út í og hnoðið í mjúkt deig.
  4. Fletjið deigið út, um ½ cm þykkt, og skerið í tígla með kleinujárni eða hníf. Skerið rifu í miðjuna á hverjum tígli og snúið öðrum endanum í gegn.
  5. Hitið feitina í potti í um 180°C og steikið kleinurnar nokkrar í einu þar til þær eru dökkgullnar á báðum hliðum. Látið renna af þeim á eldhúspappír.

Athugasemdir

  • Í tvöfalda uppskrift (2 kg hveiti) þarf 3 plötur af steikingarfeiti.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Kleinur
(Valla)
1kg. Hveiti — 150gr. sykur — 2 egg 100gr. br. smjör — 4dl. súrmjólk 2dl. mjólk — 3tsk. lyftid — 1 tsk. salt 1 1/2 tsk. Hjartasalt — 2tsk. natron 1/2 glas kardimdr. — 1glas Vanilludr. (2kg. Hveiti = 3plötur feiti
Sykur + egg hrært saman síðan mjólk ⇒ dropar ⇒ br. smjör.