Kökur og tertur

Kollukaka

Ofnhiti
190–200 °C

Hráefni

Botnar

  • 4 egg
  • 1 bolli sykur
  • 1½ bollar möndlur, saxaðar
  • 100 g súkkulaði, saxað
  • 210 g döðlur, saxaðar
  • ½ bolli hveiti
  • 1 tsk. lyftiduft

Samsetning

  • sérrí
  • rjómi, þeyttur
  • rifsberjahlaup
  • súkkulaðispænir

Aðferð

Botnar

  1. Hitið ofninn í 190–200°C og smyrjið tvö kringlótt form, um 22–24 cm.
  2. Þeytið egg og sykur vel saman.
  3. Blandið hveiti og lyftidufti saman við söxuðu möndlurnar, súkkulaðið og döðlurnar og blandið varlega út í eggjablönduna.
  4. Skiptið deiginu í formin og bakið við 190–200°C í um 25 mínútur. Látið kólna.

Samsetning

  1. Gott er að bleyta botnana með sérríi.
  2. Setjið rifsberjahlaup og þeyttan rjóma á milli botnanna.
  3. Setjið rjóma ofan á og sprautið honum upp hliðarnar.
  4. Stráið súkkulaðispónum yfir.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Kollukaka
4 egg - 1 b. sykur > þeytt sm. 1 1/2 b. möndl. - 100 gr. súkkul. 210 gr. Döðlur - 1/2 b. hveiti 1 tsk. lyftiduft.
190-200°C. í ca. + 25 mín. Gott að bleyta í með Sherry. Rjómi settur á milli og rifsb.hlaup. Rjómi settur ofan á og sprautað upp hliðar. Súkkul. spænir stráð yfir.