Koníakskökur
- Frá
- Erla-Elsa
- Magn
- 168 kökur (3 plötur með 56 kökum)
- Ofnhiti
- 200 °C
Hráefni
Botnar
- 825 g marsípan
- 480 g sykur
- 6 eggjahvítur
Krem
- 300 g smjör, mjúkt
- 500 g flórsykur
- 4 tsk. vanillusykur
- 7 msk. koníak
- 4 eggjarauður
Hjúpur
- 400 g dökkt súkkulaði
- 40 g Palmín (kókosfeiti)
Aðferð
Botnar
- Rífið marsípanið niður og blandið því saman við sykurinn og eggjahvíturnar. Hrærið ekki of mikið.
- Sprautið deiginu með rjómasprautupoka á plötu klædda bökunarpappír, kökur á stærð við 100 kr. pening, 8×7 á plötu.
- Bakið á þriðju rim ofan frá við 200°C í um 12 mínútur (185°C með blæstri).
- Látið kökurnar kólna alveg á plötunni.
Krem
- Þeytið mjúkt smjör, flórsykur, vanillusykur, koníak og eggjarauður vel saman.
- Smyrjið kreminu á sléttu hliðina á kökunum og kælið þær vel.
Hjúpur
- Bræðið súkkulaðið og Palmínið saman við vægan hita og dýfið kremhlið kældu kakanna í það. Látið storkna á köldum stað.
Aðrar stærðir
Hálf uppskrift
Hálf uppskrift gefur um 84 kökur.
Botnar
- 410 g marsípan
- 240 g sykur
- 3 eggjahvítur
Krem
- 150 g smjör, mjúkt
- 250 g flórsykur
- 2 tsk. vanillusykur
- 3 msk. koníak
- 2 eggjarauður
Hjúpur
- 200 g dökkt súkkulaði
- 20 g Palmín
Lítil uppskrift (250 g marsípan)
Ekkert magn af súkkulaði í hjúpinn er gefið fyrir litlu uppskriftina.
Botnar
- 250 g marsípan
- 1½ dl sykur
- 2 eggjahvítur
Krem
- 150 g smjör, mjúkt
- 2 dl flórsykur
- 2 tsk. vanillusykur
- 3 msk. koníak
- 2 eggjarauður
Eins og hún skrifaði það

410 Koníakskökur 240
(Erla-Elsa)
825 gr. Marsipan - 480 gr. sykur
3 6 eggjahv.
-> Rífa marsip. niður
og ekki hræra of mikið
Nota Rjómasprautupoka 8x7 á
plötuna á 3ju efstu Rim 100kr
200°C í ca. 1? mín. (185°C m/blæstri
Kólna alveg á plötunni
Krem:
150 300 gr. smjör - 250 500 gr. flórsykur
2 4 tsk. Vanillusykur - 7 msk. koníak 3 msk.
2 4 eggjarauður -> þeyta vel
200 400 gr. dökkt súkkul. + 40 20 gr. Palmín
(250 gr. marsipan
1 1/2 dl. sykur - 2 eggjahvítur)
(Krem: 150 gr. smjör - 2 dl. flórs.
2 tsk. vanillus - 2 eggjarauður)
3 msk. koniak ]
3x56 = 168 kökur (825 gr. marsipani)