Aðalréttir

Lifrarpylsa

Frá
Erla Jónatansdóttir, sem fékk hana frá Elsu

Hráefni

  • ca. 3 lambalifrar
  • 60 g salt
  • 1 l mjólk
  • 550 g rúgmjöl
  • 750 g haframjöl
  • 750 g mör, skorinn í litla teninga

Aðferð

  1. Undirbúið keppina: vambir sem eru skornar í hæfilega stóra bita og saumaðar saman í poka. Einnig má nota pylsugörn eða slátursekki.
  2. Hreinsið lifrarnar, skerið burt himnur og æðar og hakkið þær smátt.
  3. Hrærið saltinu og mjólkinni saman við lifrarhakkið, bætið rúgmjöli og haframjöli út í og hrærið í þykkan graut. Blandið mörnum saman við síðast.
  4. Setjið um 600 g í hvern kepp og saumið eða bindið fyrir. Fyllið ekki alveg, því fyllingin þenst út við suðu.
  5. Sjóðið keppina í söltu vatni í um 2½–3 klst. Stingið í þá með prjóni þegar þeir fljóta upp svo þeir springi ekki.

Aðrar stærðir

Stærri lögun (5 lifrar)

Ekki nákvæm margföldun: í stærri löguninni er hlutfallslega aðeins minna rúgmjöl og meira haframjöl og mör.

  • ca. 5 lambalifrar
  • 100 g salt
  • 1¾ l mjólk
  • 850 g rúgmjöl
  • 1300 g haframjöl
  • 1300 g mör, skorinn í litla teninga

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Lifrapylsa.
Erla Jónatans Elsa
ca. 3 lifrar + 60gr. salt 1L. mjólk 550gr. Rúgmjöl 750gr. Hafra mjöl + 750gr. mör
■ - 600 gr. í hvern kepp