Meðlæti, sósur og sultur

Mexíkóostasalat

Hráefni

  • Mexíkóostur
  • paprikuostur
  • pepperóníostur
  • 2 rauð paprika
  • ananaskurl (lítil dós)
  • 5 cm blaðlaukur (púrra)
  • sýrður rjómi
  • 150 g majónes
  • vínber
  • karrí, eftir smekk

Aðferð

  1. Skerið ostana í litla teninga.
  2. Fræhreinsið paprikurnar og skerið þær í litla bita. Sigtið safann frá ananaskurlinu. Skerið blaðlaukinn smátt og skerið vínberin í tvennt.
  3. Hrærið saman sýrðan rjóma og majónes og kryddið með karríi eftir smekk.
  4. Blandið öllu saman og geymið í kæli í nokkrar klukkustundir áður en salatið er borið fram, t.d. með kexi eða brauði.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Mexico ostur - Papr. ost - Pepperoniostur 2 Rauð papr 2 stk. - ananaskurl (lítil) 5 cm. púrra - sýrð…. rjómi - 150 majónes vínber (Karry)