Mömmukökur
- Frá
- Ásta á Hömrum
- Ofnhiti
- 180–200 °C
Hráefni
Kökurnar
- 500 g hveiti
- 2 tsk. matarsódi
- 1 egg
- 1 tsk. engifer
- 125 g sykur
- 125 g smjör
- 250 g sýróp, volgt
Krem
- 400 g flórsykur
- 125 g smjör, mjúkt
- 4 msk. sýróp (Síðar skrifað með bláu bleki: 80 g.)
- 1 egg
- 3 tsk. vanillusykur (Síðar skrifað með bláu bleki: 10 g.)
Aðferð
Kökurnar
- Hitið smjör, sýróp og sykur saman að suðu.
- Kælið blönduna og hrærið svo egginu út í.
- Blandið hveiti, matarsóda og engifer saman og hrærið út í.
- Kælið deigið yfir nótt.
- Hitið ofninn. Fletjið deigið þunnt út og stingið út kringlóttar kökur. Raðið á ofnplötur með bökunarpappír.
- Bakið við 200°C (eða 180°C, sjá athugasemd) í um 7–9 mínútur. Látið kökurnar kólna.
Krem
- Þeytið allt saman þar til kremið er létt og ljóst.
- Leggið tvær kaldar kökur saman með kremi á milli.
Athugasemdir
- Geymið kökurnar í kæli.
Eins og hún skrifaði það
Síða 1 af 2

Mömmukökur
(Ásta Hömrum)
500gr. hveiti - 2 tsk. natron - 1 egg
1 tsk. engifer - 125gr. sykur
125gr. smjör - 250gr. sýróp (volgt)
Hita smjör + síróp + sykur
að suðu -> kæla -> svo egg
svo þurrefnin -> Kæla yfir nótt
180° 200°c í ca. 7-9 min
Síða 2 af 2

Krem fyrir mömmukökur. ↗
400gr. flórsykur - 125 smjör - 4 msk. 80gr. sýróp
1 egg - 3 tsk. 10gr. Vanillusykur.
þeyta öllu sm. þar til létt og ljóst
Geyma kökur í kæli