Osso buco
- Heimild
- NOMU (www.nomu.co.za), prentað 13. nóvember 2016
Hráefni
Kjötrétturinn
- ¼ bolli jómfrúarólífuolía (NOMU er suðurafrískt vörumerki.)
- 12 litlir nautaskankar (ossobucobitar)
- sjávarsalt, eftir smekk
- hveiti, til að velta upp úr
- 2 skalottlaukar (eða 1 stór laukur), þunnt sneiddir
- 1 msk. kryddblanda fyrir nautakjöt (Á útprentinu er NOMU Beef-, Roast- eða One for All-kryddblanda.)
- 1 gulrót, í teningum
- 1 sellerístilkur, í teningum
- 2 hvítlauksgeirar, pressaður
- 1 bolli hvítvín
- 1 dós maukaðir tómatar, lífrænir (400 g dós.)
- 1 msk. tómatmauk (tómatpúrra)
- 2 msk. nautakraftur (fljótandi)
- 1 l heitt vatn, kraftinum hrært út í
- 2 greinar rósmarín
- svartur pipar, eftir smekk
Gremolata
- 1 sítróna, lífræn, aðeins rifinn börkurinn
- ¼ bolli steinselja, söxuð
- 1 hvítlauksgeiri, fínsaxaður
Aðferð
Gremolata
- Blandið sítrónuberki, steinselju og hvítlauk saman í skál.
Aðferð
- Kryddið skankana með salti, pipar og kryddblöndunni, veltið þeim upp úr hveiti og dustið það sem umfram er af. Hitið helminginn af olíunni í potti eða djúpri pönnu við meðalhita og brúnið kjötið vel á báðum hliðum. Takið það til hliðar.
- Setjið afganginn af olíunni í pottinn og mýkið laukinn þar til hann verður glær. Bætið gulrót, sellerí og hvítlauk út í og steikið í 2 mínútur til viðbótar.
- Hellið hvítvíninu út í og sjóðið þar til það er nánast gufað upp.
- Setjið kjötið aftur í pottinn ásamt tómötunum, tómatmaukinu, soðinu og rósmaríngreinunum. Kryddið með salti og pipar og látið suðuna koma upp.
- Lækkið hitann, setjið lok á og látið malla í um 2 klst., þar til kjötið losnar frá beininu og sósan er orðin þykk og bragðmikil.
Athugasemdir
- Tilvalinn vetrarréttur, góður með rauðvínsglasi.
- Berið fram á kartöflumús eða rjómakenndri polentu og stráið gremolata yfir.