Pastaréttur
- Frá
- Rósa G.
Hráefni
Salat
- 500 g rækjur
- 6 dl pastaskrúfur, soðnar
- 4 msk. blaðlaukur, saxaður
- 8 msk. paprika, söxuð
- 6 vínber, skorin
- 2 msk. steinselja, söxuð
- ananaskurl, safanum hellt af
- 3 tegundir ostur, t.d. Brie, í bitum
- jöklasalat (iceberg), rifið
- hnetur
Sósa
- 1 dl majónes
- ½ dl olía
- 3 msk. sítrónusafi
- smá karrí
- 1 hvítlauksgeiri, pressaður
Létt sósa
- 1 dós sýrður rjómi (ein dós (um 180 g))
- 1 msk. majónes
- 3 msk. sítrónusafi
- smá AB-mjólk
- smá karrí
- 1 hvítlauksgeiri, pressaður
Aðferð
- Sjóðið pastaskrúfurnar samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum, skolið þær í köldu vatni og látið renna vel af þeim.
- Blandið saman pasta, rækjum, blaðlauk, papriku, vínberjum, steinselju, ananaskurli og ostbitum.
- Hrærið saman sósuna (eða léttu sósuna) með pressuðum hvítlauk og blandið henni saman við salatið.
- Berið fram á rifnu jöklasalati og stráið hnetum yfir.
Athugasemdir
- Borið fram með ristuðu brauði.
- Léttu sósuna má nota í staðinn fyrir venjulegu sósuna.
Eins og hún skrifaði það

Pastaréttur
(Rósa G.)
Salat:
Salat: 500gr. Rækjur -
6dl. soðn. pastaskrúfur
4msk. sax blaðlauk
8 - söx. papr. - 6 vínber skorin
2msk Steinselja - Ananaskurl
3teg. ostur (Brie) í bitum
Iceberg + hnetur
Sósa:
Sósa: 1dl majó + 1/2 dl. olía
3msk. sítrsafi - Smá karrý
1 hvítlauksrif.
Dietsósa:
Dietsósa: 1dós sýrð. Rjómi
1msk. majones - 3msk. sítr. safi
smá abmjólk - smá karrý
1 hvítlauksrif
Borið fram með Ristuðu
brauði