Hráefni
- ½ kg lambakjöt, skorið í bita
- 2 eggjarauður
- 5 msk. matarolía
- 2 tsk. karrí
- 1 msk. kjötkraftur
- 1 tsk. Aromat (Aromat-krydd frá Knorr.)
- 1½ msk. sykur
- 1 tsk. salt
- 2 tsk. sósulitur (Brúnn litur í sósur.)
- 2 msk. Worcestershire-sósa
- 1 msk. sojasósa
- 1 msk. kartöflumjöl
- 1 dl mjólk
- rjómi, eftir smekk
Aðferð
- Skerið kjötið í munnbita.
- Hrærið eggjarauðum, olíu, kryddi, kjötkrafti, sósum, kartöflumjöli og mjólk saman í skál og veltið kjötinu upp úr leginum.
- Breiðið yfir skálina og geymið í kæli í hálfan sólarhring.
- Færið allt í pott og látið malla í um 20 mínútur, eða þar til kjötið er meyrt. Bætið við smá vatni ef þarf.
- Hrærið rjóma út í í lokin eftir smekk.