Meðlæti, sósur og sultur

Rabarbara-chutney

Frá
Edda

Hráefni

Fyrst

  • 500 g rabarbari, í bitum
  • 4 rauðlaukar, saxaðir
  • 25 þurrkaðar apríkósur, smátt skornar
  • 4 msk. edik (5%) (Innan sviga hjá höfundi: „? smá sýra 1 msk. 14%“, líklega hugmynd um 1 msk. af sterkara ediki (14%).)
  • ¾ dl vatn

Síðan

  • 450 g sykur
  • 5 msk. engiferrót, rifin („200 gr.“ skrifað á spássíuna)
  • 2–3 msk. karrí
  • 5 chili-aldin, söxuð

Aðferð

Fyrst

  1. Skerið rabarbarann í bita og saxið rauðlaukinn.
  2. Sjóðið allt saman við vægan hita í um 50 mínútur.

Síðan

  1. Bætið sykrinum, rifnu engiferinu, karríinu og söxuðum chili út í.
  2. Sjóðið áfram í um hálfa klukkustund eða lengur, þar til chutney-ið er orðið þykkt. Hrærið öðru hverju.
  3. Setjið heitt á hreinar, heitar krukkur og lokið strax.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Rabbarb. chutney
Edda
500 gr. Rabbarb. — 4 RauðlaukaR 25 þurrk. aprík. smátt skor 4 msk. edik 5% (? smá sýra 1 msk. 14%) 3/4 dl. vatn.
Allt soðið í ca. 50 mín. Bætt við 450 gr sykur 45 msk. Rifin engiferrót 200 gr. 2-3 msk. karrý. — 5 chili soðið áfram í ca 1/2 klst+