Rabarbarakaka
- Frá
- Erla
Hráefni
Botninn í forminu
- 3 msk. smjör, brætt
- 70 g púðursykur („(2dl)“ er skrifað fyrir ofan)
- 230 g rabarbari, skorinn í bita
Deig
- 100 g smjör, mjúkt
- 200 g sykur
- 150 g hveiti
- 1 egg
- 1½ tsk. vanilludropar
- 2 tsk. lyftiduft
- ½ tsk. salt
- 1¼ dl mjólk
Aðferð
Botninn í forminu
- Hitið ofninn í 180°C og smyrjið kringlótt form, um 22–24 cm.
- Setjið brætt smjör og púðursykur í botninn á forminu og raðið rabarbarabitunum yfir.
Deig
- Blandið öllu saman og hrærið vel.
- Hellið deiginu síðan yfir rabarbarann.
- Bakið við 180°C í um 30 mínútur á neðstu rim.
- Látið kökuna standa í nokkrar mínútur og hvolfið henni svo á disk þannig að rabarbarinn snúi upp.
Athugasemdir
- Borið fram með rjóma.
Eins og hún skrifaði það

Rabarb.kaka
(Erla)
3 msk. br. smjör - (2dl) 70 gr. púðursyk.
230 gr. Rabarbari.
Smjör + púðurs. síðast
Rabarb. settur í botn á
formi
Deig:
100 gr. Smjör
200 gr. sykur - 150 gr. hveiti
1 egg - 1 1/2 tsk. vanilludr.
2 tsk. lyftid. - 1/2 tsk. salt
1 1/4 dl. mjólk.
Öllu bl. saman og hrært vel.
hella síðan yfir Rabarb.
Bakist í ca. 30 mín
neðsta Rim
Borið fram með Rjóma