Meðlæti, sósur og sultur

Rækjuréttur Dagnýjar

Frá
Dagný

Hráefni

Rétturinn

  • rækjur eða humar, soðin og pilluð (Humar á Íslandi er leturhumar.)
  • 1 melóna
  • smá grænt (t.d. kryddjurtir eða salatblöð), til skrauts (má sleppa)

Sósan

  • 2 lime (límónur), börkurinn rifinn og safinn kreistur
  • 1 rautt chili, stórt
  • ½ dl ólífuolía, ljós
  • 2 msk. fljótandi hunang
  • 2 msk. hvítvínsedik (Strikið er endurtekningarmerki fyrir 'msk.'.)
  • salt, eftir smekk
  • pipar, eftir smekk

Aðferð

Sósan

  1. Rífið limebörkinn í skál.
  2. Kreistið síðan safann úr limeinu og blandið honum og öllu hinu (nema berkinum) saman í matvinnsluvél.
  1. Skerið melónuna í bita.
  2. Hafið smá grænt með til skrauts.
  3. Setjið rækjurnar og melónuna á disk og hellið sósunni yfir.
  4. Stráið að lokum limeberkinum yfir.

Athugasemdir

  • Gott sem eitt af meðlætinu með silungi eða laxi, ásamt salati og blönduðum hrísgrjónum.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Dagný
Rækjuréttur.
Rækjur eða humar. + 1 melóna 2 Lime safinn - 1 Rautt Chili (stórt) 1/2 dl. ólífuolía (ljós). 2 msk. fljótandi hunang. 2 - hvítvínsedik. Salt og pipar
Rífa limeberkinum í skál og kreista síðan safann úr og bl. öllu (nema berk.) í matvinnsluvél. Skera melónuna í bita Smá grænt? með til að punta. Setja Rækjur á disk og mel. hella sósu yfir. strá síðan limeberki yfir
Gott að hafa þetta með silungi eða laxi sem eitt meðlætið, salat og blönduð hrísgrjón