Brauð og bakstur

Rúgbrauð úr súrdeigi

Hún merkti uppskriftina með hjarta

Magn
2 brauð
Ofnhiti
200 °C

Hráefni

Súrdeig

  • 100 g rúgmjöl
  • 150 g súrmjólk
  • ½ tsk. salt

Brauðið

  • 50 g ferskt ger (eða um 17 g þurrger)
  • ½ l Malt, volgt (Egils Malt)
  • 3 tsk. salt
  • ½ kg rúgmjöl
  • 300 g hveiti

Aðferð

Súrdeig

  1. Blandið saman og geymið á eldhúsborðinu í 2 sólarhringa.

Brauðið

  1. Hrærið súrdeigið út í volgt maltið, síðan gerið og loks öll þurrefnin.
  2. Látið hefast í 1 klukkustund.
  3. Hnoðið og mótið 2 brauð.
  4. Setjið brauðin saman í ferkantað form og penslið olíu á milli brauðanna.
  5. Látið hefast í að minnsta kosti 45 mínútur.
  6. Stingið í yfirborðið með gaffli og penslið svo með volgu vatni.
  7. Bakið við 200°C í um 1¼ klukkustund, á næstneðstu grind í ofninum.
  8. Breiðið klút yfir brauðin á meðan þau kólna svo skorpan verði ekki eins þykk og hörð.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
♥ Rúgbrauð úr súrdeigi (2 stk.)
Súrdeig: 100 gr. Rúgmj - 150 gr. súrmjólk 1/2 tsk. salt:
bl. saman, geymt á borði í 2 sólarhringa.
50 gr. ger - 1/2 L. Malt - 3 tsk. salt 1/2 kg. Rúgmjöl - 300 gr. hveiti
Hræra súrd. út í volgu Malti → ger → allt þurrefni. Hefast í 1 klst. Hnoða, búa til 2 brauð Sett í ferk. mót, pensla á milli brauðanna með olíu, hefast í 45 min + Stinga yfirborðið m/gaffli og pensla svo með volgu vatni. 200°c í ca. 1 1/4 klst. næst neðst. Hylja með klút á meðan kólnar kólnar svo skorpan verði ekki eins þykk og hörð