Saltað lambakjöt
Hráefni
- 1 kg lambakjöt (T.d. súpukjöt eða læri í bitum.)
- 24 g salt
- 10 g sykur
Aðferð
- Blandið saltinu og sykrinum saman og nuddið blöndunni vel á allt kjötið.
- Setjið kjötið ásamt öllu saltinu í lokaðan poka eða ílát.
- Geymið í ísskáp í viku og snúið pokanum öðru hverju.
- Sjóðið kjötið í vatni í um 1–1½ klst., þar til það er meyrt, eins og hefðbundið saltkjöt.
Eins og hún skrifaði það

Saltað lambakjöt
1kg. kjöt - 24gr. salt - 10gr. sykur
Vika í ísskáp.