Meðlæti, sósur og sultur

Sítrónu- og hvítlauksolía

Frá
Hugrún

Hráefni

  • 2–3 sítrónur, aðeins rifinn börkurinn
  • 5–6 hvítlauksgeirar, fínsaxaður
  • 1 dl góð olía (t.d. ólífuolía)
  • ca. ½ búnt steinselja, söxuð

Aðferð

  1. Blandið öllu saman og berið fram með brauðinu.

Athugasemdir

  • Ótrúlega gott.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Sítrónu-hvítlauksolía.
Rifinn börkur af 2-3 sítr. 5-6 hvítlauksrif (fínsöxuð), …-1 dl. góð olía og ca. ½ búnt söx. steinselja.
Öllu blandað saman og notað á brauðið.
Ótrúlega gott.
Kær kveðja, Hugrún.