Sörur
- Frá
- Dagný
- Ofnhiti
- 180 °C
Hráefni
Botnar
- 3 eggjahvítur
- 3½ dl flórsykur
- 200 g möndlumjöl
Krem
- 1½ dl sykur
- 1½ dl vatn
- 5 eggjarauður
- 300 g smjör, mjúkt
- 40 g kakó (Upphaflega 3–4 msk., breytt í 40 g.)
- 1 tsk. vanillusykur
- 50 g núggat (má sleppa) (Höfundur setti tvö spurningarmerki við núggatið.)
- 2–3 tsk. skyndikaffiduft
Hjúpur
- gott súkkulaði (t.d. suðusúkkulaði)
- smá rjómi
Aðferð
Botnar
- Þeytið eggjahvíturnar vel og bætið svo flórsykrinum út í.
- Blandið möndlumjölinu varlega saman við.
- Setjið deigið með teskeið á plötu klædda bökunarpappír, kökur á stærð við 100 kr. pening, því þær stækka talsvert. Mest 5×6 kökur á plötu.
- Bakið við 180°C í 11–12 mínútur.
- Látið kökurnar kólna aðeins á plötunni, en ekki alveg, áður en þær eru teknar af.
Krem
- Sjóðið sykur og vatn saman í 8–10 mínútur þar til úr verður síróp.
- Þeytið eggjarauðurnar vel og hellið sírópinu í mjórri bunu út í þær á meðan þeytt er. Þeytið vel.
- Þeytið síðan mjúka smjörið vel út í, ásamt kakói, vanillusykri, núggati (ef notað) og kaffidufti. Þeytið allt vel.
- Smakkið til.
- Setjið kremið með skeið á sléttu hliðina á kökunum og kælið.
- Hjúpið kremhliðina með góðu bræddu súkkulaði með smá rjóma.
Athugasemdir
- Ef gera á tvöfalda uppskrift er ekki gott að gera báðar í einu.
- Við titilinn stendur „(210)“, líklega fjöldi kakna.
Eins og hún skrifaði það

Sörur (210)
(Dagný)
3 eggjahv. - 3 1/2 dl. flórsykur
200 gr. möndlumjöl.
þeyta vel hvítur svo flórsykur út í
bl. möndlumj. varl saman við
ca. 100kr stækka talsvert. (ef gera á
2 uppskr. ekki gott að gera báðar
í einu) 5x6 hám. á plötuna, láta
aðeins kólna. ekki alveg.
180°C í 11-12 mín.
Krem:
1 1/2 dl. sykur + … 1 1/2 dl. vatn
sjóða saman í 8-10 mín. í síróp
þeyta vel 5 eggjarauður og hella
sírópi í mjórri bunu út í rauðurnar
þeyta vel síðan er 300 gr. mjúkt
smjör þeytt vel út í og 3-4 40 gr + 1 tsk. Vansyk msk. kakó
+ nougat?? 50 gr. nougat
og 2-3 tsk. Kaffiduft. allt þeytt vel
Smakka til. Kremið sett á kökurnar
með skeið og kalt. Hjúpað með góðu
súkkul. m/smá Rjóma