Meðlæti, sósur og sultur

Súrsaðir grænir tómatar

Frá
Þura

Hráefni

  • 1 kg grænir tómatar, litlir, heilir
  • salt (í saltvatn)
  • ½ kg sykur
  • ½ l edik
  • 6 negulnaglar
  • 1 kanilstöng

Aðferð

  1. Pikkið tómatana (stingið í þá með gaffli eða prjóni) og leggið þá í bleyti í saltvatn yfir nótt.
  2. Hellið saltvatninu af og skolið tómatana.
  3. Sjóðið edik, sykur og krydd saman þar til sykurinn er uppleystur.
  4. Setjið tómatana út í og sjóðið í 5 mínútur.
  5. Setjið tómatana í hreinar, heitar krukkur, hellið leginum yfir svo fljóti yfir og lokið.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Súrsaðir grænir tóm
(Þura
1 kg. tóm. lagðir í bleyti (salt) yfir nótt, og pikkaðir.
1/2 kg. sykur — 1/2 L. edik — 6 negulnaglar — 1 kanilstöng
Edik, sykur og krydd soðið, Tóm soðnir í 5 mín. Sett á glös og lokað.