Chilisulta
- Frá
- Rósa
Hráefni
- 15 rauð chilialdin
- 5 bollar sykur
- 3 rauðar paprikur, fræhreinsaðar
- 1½ bollar edik (6%)
- 5 tsk. sultuhleypir (nefndur í aðferðinni)
Aðferð
- Setjið chilialdin, papriku, sykur og edik í blandara og maukið allt saman.
- Sjóðið í potti í 10 mínútur.
- Bætið þá 5 tsk. af sultuhleypi út í.
- Sjóðið áfram í 1–2 mínútur, hellið heitri sultunni á hrein, heit glös og lokið strax.
Eins og hún skrifaði það

Chilisulta
(Rósa)
15 Chili Rauðir - 5 b. sykur
3 papr Rauð.)
1 1/2 b. edik 6%
, sett í mixer,
öllu bl. saman. Soðið í
10 min. þá er sultuhl.
settur útí = 5 tsk.