Flapjacks
- Frá
- Heiðar Örn
- Ofnhiti
- 190 °C
Hráefni
- 150 g smjör
- 4 msk. síróp (ljóst síróp, t.d. Lyle's)
- 50 g púðursykur
- 275 g haframjöl
Aðferð
- Hitið ofninn í 190°C og smyrjið ferkantað form. Bræðið smjör, síróp og púðursykur saman í potti við vægan hita og hrærið haframjölinu saman við.
- Þrýstið blöndunni vel niður í ferkantaða formið.
- Bakið við 190°C í um 20 mínútur.
- Látið kólna í forminu í um 15 mínútur.
- Skerið í bita og látið kólna alveg.
Athugasemdir
- Geymið í lokuðu boxi.
Eins og hún skrifaði það

FlapJacks.
(Heiðar)
150gr. smjör — 4 msk. síróp
50gr. púðurs. — 275gr. haframjöl
190°C ca. 20min.
þrýsta vel í ▭ mót. Láta
kólna í ca. 15min. Skera niður í
bita, láta kólna alveg. Geyma í boxi