Flórsykurmarengs
- Ofnhiti
- 130 °C
Hráefni
Marengsinn
- 8 eggjahvítur
- 400 g flórsykur
- 100 g döðlur, saxaðar
- 100 g súkkulaði, saxað
Á milli
- ½ l rjómi
- 3–4 bananar
Aðferð
Marengsinn
- Hitið ofninn í 130°C. Teiknið tvo hringi (um 24 cm) á bökunarpappír á tveimur plötum.
- Stífþeytið eggjahvíturnar og flórsykurinn saman. Blandið söxuðum döðlum og súkkulaði varlega saman við.
- Skiptið marengsinum á hringina tvo og sléttið úr honum.
- Bakið við 130°C í um 60 mínútur í næstneðstu rim.
- Marengsinn á að verða ljósbrúnn. Látið hann kólna alveg.
Á milli
- Þeytið rjómann og skerið bananana í sneiðar. Setjið rjóma og banana á milli marengsbotnanna.
Eins og hún skrifaði það

Flórsykurmarengs
8 eggjahvítur - 400gr. flórsykur
100gr. döðlur - 100gr. súkkul.
Á milli + 1/2 l. Rjómi og 3-4 bananar
130°c. ca. 60 min. næst neðstu Rim
Bakist ljósbrúnn.