Fullkomnar enskar skonsur
- Frá
- Cupcake Jemma
Hráefni
- 500 g hveiti
- 2 msk. sykur
- 2 kúfuð tsk. lyftiduft
- 1 tsk. salt
- 110 g smjör, kalt, í teningum
- 300 ml mjólk
Aðferð
- Setjið þurrefnin í matvinnsluvél ásamt köldu smjörteningunum og látið vélina ganga í stuttum lotum þar til blandan er eins og brauðmylsna.
- Setjið blönduna í skál, gerið holu í miðjuna og hellið mjólkinni út í.
- Blandið saman með gaffli og síðan með höndunum, rétt þar til deigið loðir saman.
- Fletjið deigið út í um 3 cm þykkt.
- Hitið ofninn í 220°C. Stingið út kringlóttar skonsur, um 6 cm í þvermál, og raðið á plötu með bökunarpappír.
- Penslið með þeyttu eggi.
- Bakið í 12–15 mínútur, þar til skonsurnar eru vel lyftar og gullinbrúnar.
Eins og hún skrifaði það

(Cup. Jemma)
Perfect english
skones.
500 gr. hveiti - 2 tbsp. sykur
2 tsp. kúf. baking powder.
1 tsp. salt
Allt sett í mixer +
110 gr. kaldir smjörteningar
sett í skál búa til holu og
hella 300 ml. mjólk útí.
Blanda saman m/gaffli svo með
höndunum. Flatt út í ca. 3 cm. þ.
Pensla m/eggi