Brauð og bakstur

Gamaldags eplaskífur

Hráefni

  • 2 egg
  • ⅓ bolli sykur
  • 1 tsk. lyftiduft
  • 1⅓ bollar hveiti
  • ¾ bolli mjólk
  • ½ tsk. salt
  • 2 msk. smjör, brætt
  • 1 tsk. kardimommudropar
  • sítrónusafi og rifinn sítrónubörkur (má sleppa) (Í stað kardimommudropa.)
  • epli, í litlum bitum

Aðferð

  1. Þeytið egg, sykur og mjólk vel saman.
  2. Bætið síðan þurrefnunum og brædda smjörinu út í (og kardimommudropunum, eða sítrónusafa og rifnum berki) og hrærið vel saman.
  3. Hitið eplaskífupönnu og smyrjið hverja holu með smjöri. Fyllið holurnar um ⅔.
  4. Stingið eplabita ofan í hverja eplaskífu á pönnunni.
  5. Snúið eplaskífunum með prjóni þegar botninn hefur stífnað og bakið þar til þær eru gullinbrúnar allan hringinn.
  6. Berið fram með flórsykri (og sultu).

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Gamaldags eplaskífur
2 egg - 1/3 b. sykur - 1 tsk. lyftiduft 1 1/3 b. hveiti - 3/4 b. mjólk - 1/2 tsk. salt 2 msk. br. smjör - 1 tsk. kardimdr. (eða safi + rif. börk af sítr.)
Egg + sykur + mjólk þeytt vel síðan þurrefnin + br. smjör. Hræra vel saman (Stinga eplabita í á pönnunni) Borið fram með flórs. (sultu)