Brauð og bakstur

Hollenskar pönnukökur

Hráefni

  • 100 g bókhveiti
  • 300 g hveiti
  • 7 dl mjólk
  • 4 egg
  • 1 msk. sykur
  • smá salt

Aðferð

  1. Blandið bókhveiti, hveiti, sykri og salti saman. Pískið eggin og mjólkina út í smátt og smátt þar til deigið er kekkjalaust.
  2. Hitið pönnu á hita 5 á hellunni.
  3. Smyrjið pönnuna létt, hellið þunnu lagi af deigi yfir allan botninn og steikið þar til kakan er gullin á báðum hliðum.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Hollenskar pönnukökur
100gr. Bokhveiti - 300gr. hveiti 7dl. mjólk - 4egg 1msk. sykur - Smá salt
Hiti 5.