Hrásalat
Hráefni
- ½ hvítkálshöfuð, fínt skorið
- 2–3 gulrætur, góðar, rifnar
- ½ rauðlaukur, frekar lítill, fínt saxaður
- 3 msk. majónes
- 3 msk. sýrður rjómi (18% eða fituminni)
- salt
- hvítur pipar
- 1 msk. hvítvínsedik
- 1 msk. erythritol (sykurlaust sætuefni; má nota sykur)
- smá sítrónusafi (má sleppa)
Aðferð
- Skerið hvítkálið mjög fínt, rífið gulræturnar og saxið rauðlaukinn smátt. Setjið í skál.
- Hrærið saman majónesi, sýrðum rjóma, hvítvínsediki og erythritoli og kryddið með salti og hvítum pipar.
- Bætið við smá skvettu af sítrónusafa ef vill.
- Blandið sósunni saman við grænmetið og smakkið til. Gott er að láta salatið standa í kæli í hálftíma áður en það er borið fram.
Eins og hún skrifaði það

Hrásalatið
1/2 hvítkálshöfuð
2-3 góðar gulrætur
1/2 lítill rauðlaukur (frekar
lítill)
3 msk majó
3 msk sýrður rjómi 18% eða
minna
Salt - hvítur pipar
1 msk hvítvínsedik
1 msk erythritol.
Ég læt snettu af sítrónusafa